Nokia 6303i Classic - Minniskorti komið fyrir eða fjarlægt

background image

Minniskorti komið fyrir eða fjarlægt

Aðeins skal nota samhæft microSD-kort sem Nokia samþykkir til notkunar með þessu

tæki. Nokia styðst við viðurkennda staðla fyrir minniskort. Þó getur verið að sum kort

sé ekki hægt að nota að fullu með þessu tæki. Ósamhæf kort geta skaðað kortið og

tækið og skemmt gögn sem vistuð eru á kortinu.
Síminn styður microSD-kort sem eru allt að 8 GB að stærð.

Tækið tekið í notkun

7

background image

Minniskorti komið fyrir

1 Fjarlægðu bakhliðina.

2 Settu kortið í raufina þannig að snertiflötur þess snúi niður og ýttu á það þar til það

smellur á sinn stað.

3 Settu bakhliðina aftur á sinn stað.
Minniskort fjarlægt

Mikilvægt: Ekki fjarlægja minniskortið þegar verið er að nota það í aðgerð. Það gæti

skaðað kortið og tækið og skemmt gögn sem vistuð eru á því.
Hægt er að fjarlægja eða skipta um minniskort án þess að slökkva á tækinu.
1 Gættu þess að ekkert forrit sé að nota minniskortið.

2 Fjarlægðu bakhliðina.

3 Þrýstu minniskortinu varlega inn til að opna læsinguna og fjarlægja það.

4 Settu bakhliðina aftur á sinn stað.