Símtalsstillingar
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Símtalsstillingar
.
Veldu úr eftirfarandi:
Símtalsflutningur — Til að flytja innhringingar (sérþjónusta). Ef til vill geturðu ekki
flutt símtöl ef einhver valkostur er virkur sem útilokar símtöl.
Lyklaborðssvar — Til að svara mótteknum símtölum með því að styðja stutt á einhvern
takka, fyrir utan rofann, vinstri og hægri valtakkana eða hætta-takkann.
Sjálfvirkt endurval — Til að láta símann hringja sjálfkrafa aftur í númer ef símtal
mistekst. Síminn reynir að hringja í númerið tíu sinnum.
Skýrleiki tals — Til að auka skýrleika tals þegar umhverfishávaði er mikill.
Hraðval — Til að hringja í nöfn og símanúmer sem úthlutað hefur verið á talnatakkana
(2-9) með því að halda viðeigandi talnatakka inni.
Biðþjónusta símtala — Til að símkerfið láti þig vita af innhringingu meðan á öðru
símtali stendur (sérþjónusta).
Lengd símtals — Til að birta lengd yfirstandandi símtals.
Samantekt símtals — Til að birta í smástund upplýsingar um lengd símtala að þeim
loknum.
Birta mínar upplýs. — Til að þeir sem þú hringir í sjái símanúmerið þitt (sérþjónusta).
Til að nota stillingarnar sem þú samþykktir með þjónustuveitunni velurðu
Stillt af
netkerfi
.
Lína til að hringja — Til að velja símalínu fyrir símtöl, ef SIM-kortið þitt styður fleiri en
eina símalínu (sérþjónusta)